Kristniboðar frá Búlgaríu á samkomu 21. desember

Samkoman í Kristniboðssalnum miðvikudagskvöldið 21. desember verður í umsjón hjónanna Gísla Friðgeirssonar og Lilju Sigurðardóttur.

Hjónin Nora og Gísli Jónsson, sem eru kristniboðar í Búlgaríu, eru stödd hér á landi um jólin, munu taka þátt í samkomunni og segja frá starfi sínu.

Kaffi og samfélag eftir samkomuna

Verið hjartanlega velkomin