Kjötsúpukvöld og fræðslustund

Miðvikudaginn 18. september heldur Kristniboðsfélag karla árlegt kjötsúpukvöld sitt til fjáröflunar starfi Kristniboðssambandsins. Hefst það klukkan 19 í Kristniboðssalnum og kostar 3.500 á manninn. Ekki þarf að skrá sig, aðeins að mæta.

Síðan kl. 20 hefst fræðslustund þar sem Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri SÍK fjallar um nokkur láhersluatriði Páls postula í Korintubréfunum, um líf í samfélagi: kærleikan, tilbeiðsluna og náðargjafirnar. Allir eru velkomnir á hvorn atburðinn sem er eða þá báða. Að lokinni fræðslustund verður kaffi og meðlæti á boðstólunum.