Enn um samkomur og samkomutakmarkanir- Bænastund 28. október

Ákveðið hefur verið að streyma frá Kristniboðssalnum tvö miðvikudagskvöld í mánuði á meðan samkomutakmörkunum er háttað þannig að ekki er hægt að hafa hefðbundnar samkomur. Þá daga sem ekki er streymi verður boðið upp á stutta samveru með hugvekju og bænastund í salnum. Annað kvöld miðvikudaginn 28. október verður því ekki streymi heldur bænastund kl. 20 Við minnum áfram á að hægt er að gefa til starfsins með millifærslu á reikn 0117-26-002800 kt. 550269- 4149. Guð elskar glaðan gjafara ❤️