Samkoma miðvikudaginn 28. maí kl. 20:00

posted in: Óflokkað | 0

Ólafur Jóhannsson verður með hugleiðingu út frá Hebreabréfinu 12. kafla undir yfirskriftinni „Beinum sjónum okkar til Jesú.“ Fréttamolar frá kristniboðinu. Kaffi, meðlæti og samfélag að samkomu lokinni. Allir hjartanlega velkomnir!

Bæna og söngsamkoma um píslarsögu Jesú

posted in: Óflokkað | 0

Samkoman miðvikudagskvöldið 9. apríl verður bæna- og söngsamkoma þar sem píslarsaga Jesú verður í brennidepli. Lesið verður úr Passíusálmunum. Hörmung þá særir huga minnhef ég mig strax í grasgarð þinn.Dropana tíni ég dreyra þíns,drottinn, í sjóðinn hjarta míns.Það gjald alleina … Continued

Fjáröflunarsamkoma miðvikudag 2. apríl kl. 20:00

posted in: Óflokkað | 0

Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir: Hin árlega fjáröflunarsamkoma Kristniboðsfélags kvenna. Þær verða með sitt glæsilega happdrætti og selja kaffiveitingar að samkomu lokinni. Birna Jónsdóttir flytur hugleiðingu.Komum og styðjum vel við bakið á kristniboðsstarfinu.