Kristniboðsfélag karla náði þeim áfanga að verða 100 ára í fyrra en vegna samkomutakmarkanna hefur frestast nokkrum sinnum að halda upp á það. Því verður bætt úr á samkomu miðvikudagskvöldið 15. desember kl. 20 þar sem þessum áfanga félagsins verður fagnað. Sr. Frank M. Halldórsson hefur hugvekju, Skúli Svavarsson og Ragnar Gunnarsson hafa stutt kristniboðserindi og flutt verður tónlist. Halldór Konráðsson, formaður kristniboðsfélags karla leiðir samveruna.
Verið hjartalega velkomin 🙂