Þá er komið að næstu fjölskyldusamkomu í Kristniboðssalnum sem Kristniboðssambandið heldur í samvinnu við Salt kristið samfélag og Íslensku Kristskirkjuna.
Samkoman hefst að venju kl. 17 sunnudaginn 7. apríl og strax á eftir er í boði að kaupa ljúffenga máltíð á vægu verði.
Við syngjum saman og eigum gott samfélag og Kjartan Jónsson ætlar að segja okkur frá „eilífðarmanninum“
Allir krakkar, mömmur, pabbar, afar, ömmur, frændur, frænkur, vinir og nágrannar hjartanlega velkomnir!