Nú styttist í áður auglýstan aðalfund SÍK, miðvikudaginn 24. apríl kl. 18 í Kristniboðssalnum. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum eða lögum SÍK sem finna má hér á síðunni undir flipanum „Um okkur“. Fundurinn er öllum opinn en atkvæðisrétt hafa fullgildir félagsmenn.
Boðið verður upp á súpu í upphafi fundar og stefnt að fundarlokum kl. 22 eða fyrr.