Stjórn SÍK boðar til aðalfundar miðvikudaginn 24. apríl, sem einnig er síðasti vetrardagur, kl. 18 í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum Sambands íslenskra kristniboðsfélaga, sem er að finna hér á vefsvæðinu undir flipanum „Um okkur“ þar sem síðan er valið „Lög SÍK og aðrar samþykktir“.