Söngsamkoma miðvikudaginn 18. október

Miðvikudaginn 18. október kl. 20 verður samkoma að venju í Kristniboðssalnum. Á samkomunni að þessu sinni verður mikið sungið, bæði eldri söngvar sem flestir kunna sem og nýir og nýlegri og aldrei að vita nema við lærum eitthvað alveg nýtt. Bjarni Gunnarsson og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir sjá um tónlistina og Ásmundur Magnússon hefur hugleiðingu.

Allir hjartanlega velkomnir