Dagskrá haustsins er í vinnslu þessa stundina en ég er birt með fyrirvara um breytingar það sem ákveðið hefur verið fram í september
Miðvikudagssamkomur kl. 20 í Kristniboðssalnum:
16. ágúst Opinberunarbókin – Fræðslukvöld
Ragnar Gunnarsson heldur áfram þar sem frá var horfið í vor að fjalla um efni Opinberunar Jóhannesar
23. ágúst: Heimsókn frá Norðurlöndunum
Hópur framkvæmdastjóra kristniboðshreyfinganna á Norðurlöndum sem staddur verður hér á landi til að funda tekur þátt í samkomunni
30. ágúst Heimsókn frá Noregi
Kirsten og Erling Lundeby kristniboðar segja frá starfinu í Pókot í Keníu og hafa hugleiðingu
6. september Ísrael
Anna MAgnúsdóttir og Guðmundur Jóhannsson segja frá ferðalagi sínu til Ísrael fyrr á árinu og Guðmundur hefur hugleiðingu
13. september Opinberunarbókin – Fræðslukvöld
Ragnar Gunarsson fjallar um efni Opinberunarbókarinnar