Í gær fylgdi Morgunblaðinu fjögurra síða kynningarblað um starf og 90 ára afmæli Kristniboðssambandsins. Fyrir utan fasta áskrifendur um land allt var svokölluð aldreifing, þar sem blaðið var borið út í flest öll hús á höfuðborgarsvæðinu. Var þetta gert í stað þess að gefa út vortölublað Kristniboðsfrétta. Valkröfur eru sendar á áskrifendur Kristniboðsfrétta í netbanka þeirra og vonumst við til að þeim verði vel tekið.