Kristniboðsalmanakið 2021 var að koma úr prentun

Kristniboðsalmanakið fyrir næsta ár er komið út.

Forsíðumyndin er af pakistönskum drengjum að leik en Kristniboðssambandið styrkir sjónvarpskristniboð í Pakistan í gegnum gervihnattarsjónvarpsstöðina Pak7

Áskrifendur Kristniboðsfrétta munu fá almanakið sent heim með næsta blaði sem áætlað er að komi út um miðjan nóvember. Þeir sem eru með rafræna áskrift geta óskað eftir að fá almanakið sent með því að senda póst á sik@sik.is eða hringja í síma 533 4900 Hægt er að nálgast eintök á skrifstofu SÍK og á Basarnum – Nytjamarkaði. Þegar aðstæður leyfa verður einnig hægt að nálgast eintök í kirkjum á höfuðborgarvæðinu og víðar.