Heimsókn frá SÍK til Akureyrar á kristniboðsdaginn

Ásta Bryndís Schram formaður SÍK mun heimsækja Akureyri á kristniboðsdaginn sunnudaginn 10. nóvember. Þar mun hún taka þátt í þremur samverum í Glerarkirkju og segja frá kristniboðsstarfinu en hún fór ásamt eiginmanni og dóttur til Keníu í sumar á slóðir kristniboðanna. Kl. 11 er fjölskyldusamvera, kl. 17 verður samvera með kristniboðshópi Akureyrar sem er opin öllum og kl. 18 almenn guðsþjónusta. Það eru allir hjartanlega velkomnir á allar þessar samverur og við hvetjum kristniboðsvini norðan heiða til að fjölmenna