Í kvöld,miðvikudaginn 10. janúar kl. 20 verður fræðslukvöld í Kristniboðssalnum þar sem Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍK verður með samantekt á umfjöllun um Opinberunarbókina sem hann var með á fræðslukvöldum síðasta árs. Boðið verður upp á spurningar og umræður. Allir eru velkomnir hvort sem þeir hafa náð að mæta á hin fræðslukvöldin eða ekki. Opinberunarbókin er merkilegt rit sem áhugavert er er að pæla í og ræða saman um og eflaust er fólk með mismunandi hugmyndir og skoðanir þegar kemur að túlkun þess.
Kaffi og samfélag eftir samveruna