Kína er alltaf ofarlega í huga kristniboðsvina og mjög þýðingarmikill kristniboðsakur, því þangað fóru okkar fyrstu kristniboðar. Landið er ekki aðeins fjölmennasta ríki heims heldur má búast við því að þjóðin hafi veruleg áhrif á gang mála í heiminum á næstu árum. Kirkjan í Kína vex þrátt fyrir hömlur en ekki er nákvæmlega vitað hve stór hluti þjóðarinnar er kristinn. Opinberar tölur segja 16 milljónir en talið er að kristnir Kínverjar séu allt að 100 milljónir. Kína er það sem kallast „lokað land“ þar sem kristniboðar eru ekki velkomnir og fá ekki atvinnuleyfi. Ýmsir einstaklingar vinna að hjálparstarfi í landinu og eru með verkum sínum vitnisburður um trú sína.

Það er því ánægjulegt að SÍK tekur þátt í að senda Guðs orð til Kína með því að greiða fyrir ákveðna dagskrárþætti sem útvarpsstöðin NOREA framleiðir og sendur út. Ekkert fær stöðvað útvarpbylgjurnar. Einkum er um að ræða barnadagskrá. Kannanir sýna að fólk á landsbyggðinni nýtir sér vel þessa dagskrá. Hlustun á þættina er mikil og lesendabréf gefa til kynna að þeir hafi veruleg áhrif. Framlag okkar er 25.000 norskar krónur á ári eða tæp hálf milljón íslenskar.