Samkoman verður á kristniboðsdaginn 8. nóvember í samkomusal Hjálpræðishersins á Akureyri, Hrísalundi 1a, kl. 17. Sr. Ólafur Jóhannsson, stjórnarmaður í Kristniboðssambandinu, annast samkomuna. Nú nálgast aldarafmæli Kristniboðssambandsins. Allan starfstíma þess hafa Akureyringar gegnt veigamiklu hlutverki sem almennir bakhjarlar, stjórnarmenn og kristniboðar. Við lítum yfir farinn veg, ræðum starf SÍK um þessar…
Á miðvikudagssamkomu 14. okt. mun Gunnar Jóhannes Gunnarsson fræða okkur um Pál postula og kraft Guðs.
Unglingarnir bjóða upp á bakkelsi til fjáröflunar fyrir mótsferð sína til Færeyja í lok mánaðarins.
Þú ert innilega velkominn!
Það eru allir velkomnir á miðvikudagssamkomu í Kristniboðssalnum þar sem við eigum saman stund í bæn, söng og góðu samfélagi. Vigfús Ingvarsson mun fjalla um náttúrulega safnaðaruppbyggingu og uppbyggingu einstaklinga. Við biðjum fyrir kristniboðinu.
Komum saman, uppörvumst í Orði Guðs, syngjum saman og fáum glóðvolgar fréttir af kristniboðinu.
Kaffi, kruðerí og samfélag að samkomu lokinni.
Allir hjartanlega velkomnir!
Það eru allir innilega velkomnir á miðvikudagssamkomu Kristniboðssambandsins kl. 20.00. Kaffi og samfélag á eftir.
Næsta Alfa-námskeið hefst fimmtudaginn 24. september. Alfa er 10 vikna námskeið um kristna trú. Þar er fjallað á einfaldan og þægilegan hátt um grundvallaratriði kristinnar trúar og boðskap Biblíunnar. Leitað er svara við mikilvægustu spurningum lífsins, spurningum sem allir spyrja sig einhvern tímann á lífsleiðinni. Er Guð til? Hver er tilgangur lífsins? Er kristin…
Árlegt kjötsúpukvöld verður miðvikudaginn 9. september kl. 19:00! Þá ætlar karlarnir í Kristniboðsfélagi karla að elda gómsæta kjötsúpu og selja til styrktar kristniboðinu. Eftir súpuna verður samkoma þar sem Kjartan Jónsson verður með hugleiðingu og brauðsbrotningu. Júlíana Gústafsdóttir Eriksson, nýr starfsmaður SÍK, og Rannvá Hentze, sjálfboðaliði frá Færeyjum, kynna sig og ungmennastarfið. Fjölmennum!
Mánudaginn 7. september kl. 7:00 verður haldin klukkustundar bænastund í Kristinboðssalnum sem markar upphaf að þverkirkjulegu bænaátaki sem kallast „Látum ljósin loga“.
Beðið verður fyrir einingu meðal hinna kristnu og því að þjóð okkar vakni til trúar á Jesú Krist.
Kristniboðssambandið tekur þátt í þessari bænakeðju með bænastund alla þriðjudaga kl. 12-13 í Kristniboðssalnum. …
Ólöf Inger Kjartansdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Silhouettes - memories of a past life undir höfundarnafninu Kama Poriot. Hún kom við á skrifstofunni í gær og afhenti okkur nokkur eintök, en Kristniboðssambandið styrkti útgáfu bókarinnar. Ólöf Inger ólst upp sem barn kristniboða á vegum SÍK í Keníu, á Íslandi og í Kaliforníu og býr…
