Samkoman verður á kristniboðsdaginn 8. nóvember í samkomusal Hjálpræðishersins á Akureyri, Hrísalundi 1a, kl. 17.
Sr. Ólafur Jóhannsson, stjórnarmaður í Kristniboðssambandinu, annast samkomuna.
Nú nálgast aldarafmæli Kristniboðssambandsins. Allan starfstíma þess hafa Akureyringar gegnt veigamiklu hlutverki sem almennir bakhjarlar, stjórnarmenn og kristniboðar.
Við lítum yfir farinn veg, ræðum starf SÍK um þessar mundir og hugmyndir um þróun þess í náinni framtíð.
Kristniboð er ekki valkvætt áhugamál heldur mikilvægasta hlutverk kristinnar kirkju, sbr. kveðjustund Jesú með lærisveinunum (Matt. 28:19).
Eftir samkomuna verður léttur kvöldverður og spjall og aðalfundur félagsins. Tekið verður á móti samskotum til starfsins.
Stjórn Kristniboðsfélags Akureyrar
Kristniboðssamkoma á Akureyri 8. nóvember

