Nýútkomin bók

Ólöf Inger Kjartansdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Silhouettes – memories of a past life undir höfundarnafninu Kama Poriot. Hún kom við á skrifstofunni í gær og afhenti okkur nokkur eintök, en Kristniboðssambandið styrkti útgáfu bókarinnar.

Ólöf Inger ólst upp sem barn kristniboða á vegum SÍK í Keníu, á Íslandi og í Kaliforníu og býr nú í Danmörku.
„Skrif eru leið til að skilja hið undarlega í lífinu og gefa reynslunni merkingu. Þau gera manni kleift að taka það sem maður hefur upplifað, hvort sem það er gott eða slæmt, og breyta því í eitthvað fallegt. Vonandi finnur lesandinn þess merki í þessari bók.“

Aftan á kápu bókarinnar segir:
Áföll geta verið margvísleg og birst í ýmsum myndum. Stundum áttar maður sig ekki á því að um áfall var að ræða fyrr en löngu síðar, þegar eitthvað gerist sem knýr mann til að horfast í augu við það. Hvað gerist þegar maður upplifir eitthvað sem umbyltir allri sjálfsmynd manns? Að alast upp sem barn kristniboða fól oft í sér að vera skilinn eftir á meðan foreldrarnir héldu út í heim, knúin áfram af köllun. Spurningar um hvort það hafi verið rétt komu ekki fyrr en síðar. Miklu síðar.

Bókina er hægt að panta hjá útgefandanum Pegasus Publishers og á Amazon.

Leave a comment

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0