Um SÍK

Samband íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK), oft nefnt Kristniboðssambandið, er landssamtök kristniboðshópa, félaga og einstaklinga sem vinna að kristniboði og hjálparstarfi meðal annara þjóða.

Kristniboðssambandið var stofnað árið 1929. Í upphafi studdi það kristniboða sem sendir voru til Kína. í dag er starfssvæði SÍK aðallega í Afríkulöndunum Eþíópíu og Keníu og einnig í Japan en í þessum löndum starfa íslenskir kristniboðar. SÍK styður einnig útsendingar kristilegra útvarpsþátta til Kína og er aðili að SAT7, sjónvarpsstöð sem sendir kristilega dagskrá til Mið-Austurlanda og Norður-Afríku. Megnið af þeirri dagskrá er framleidd í Líbanon og Egyptalandi, en starf SAT7 er samkirkjulegt. Á aðalfundi 2024 var ákveðið að leggja aukna áhrslu á kristniboð í Evrópu, einkum meðal jaðarhópa. SÍK styður hjón sem m.a. stafa meðal farsimælandi innflytjenda eða umsækjenda um alþjóðlga vernd í London.

Kristniboðar sem fara út á vegum SÍK fara yfirleitt í langan undirbúning, læra um siði og venjur þeirra sem starfa á á meðal, læra tungumál heimamanna og keppa eftir því að sýna heimamönnum virðingu og að vinna starf sitt allt á faglegan hátt í samræmi við almennar siðareglur.

Hér á landi er unnið markvisst starf við boðun og fræðslu. Starfsmenn SÍK taka þátt í margvíslegu starfi á kirkjulegum grunni þar sem þeir kynna starfið, hafa hugleiðingar og sinna fræðlsu.

Hafa má samband í síma 533 4900 eða með tölvupósti á sik@sik.is ef óskað er eftir heimsóknum starfsmanna okkar.

SÍK gefur út Kristnboðsfréttir, fréttablað SÍK, tvisvar á ári og Kristniboðsalmanakið árlega.

SÍK á bókaútgáfuna Salt ehf sem gefur út eina og eina bók og kristilega tímaritið Bjarma sem kemur út þrisvar á ári.

0
Stuðningasaðilar
0
Kristniboðar erlendis
0
Sjálfboðaliðar alls
SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0