Skip to content Skip to footer

Samstarf Kristniboðssambandsins og Heimamissiónarinnar í Færeyjum

Kristniboðssambandið á Íslandi og Kirkjuliga Heimamissiónin í Færeyjum hafa nýverið undirritað samstarfssamning sem miðar að því að efla kristniboð á Norðurslóðum – bæði heima fyrir og út fyrir landsteinana.

Í samningnum eru mörkuð ákveðin áherslusvið þar sem samtökin ætla að vinna saman og miðla hvort öðru af þekkingu sinni. Þar má nefna unglingastarf, leiðtogaþjálfun, innflytjendamál, sameiginleg alþjóðleg trúboðsverkefni og bæn fyrir starfinu og þjóðunum.

Heimamissiónin í Færeyjum á sér langa sögu og starfar að trúboði og eflingu trúarlífs á heimaslóðum en hefur nýverið samþykkt að einskorða starf sitt ekki eingöngu við Færeyjar. Færeysku samtökin reka mjög öflugt barna- og ungmennastarf auk leiðtogaþjálfunar á meðan starf SÍK nær til fleiri landa.

Söguleg og menningarleg tengsl Íslendinga og Færeyinga eiga sér djúpar rætur – og því eðlilegt að trúboðsstarf á þessum slóðum byggi á góðu samstarfi. Heimamissiónin á og rekur sjómannaheimilið Ørkina í Reykjavík og margir Færeyingar koma reglulega til Íslands í tengslum við kristilegt starf og samkomur.

SÍK og HM

F.v. Jákup Brúsá (aðalskrivari HM), Ragnar Gunnarsson (SÍK), Sigríður Schram (aðalskrivari SÍK), Ásta Bryndís Schram (forkv. SÍK), Heri Kjærbo (form. HM) og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir (SÍK).
Picture: Trúboðin

faroe islands
0
Stuðningsaðilar
0
Sjálfboðaliðar allt að
0
Kristniboðar erlendis
SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0