Skip to content Skip to footer

Starf SÍK í Keníu

Þó að kristniboðar hafi fyrst komið til Kenýu upp úr miðri 19. öld og mikið kristniboð hafi verið stundað í landinu urðu ýmsir þjóðflokkar alveg útundan. Einn þeirra er Pókotþjóðflokkurinn sem býr í samnefndu héraði í norðvesturhluta landsins við landamæri Úganda. Kristniboðssambandið hefur ásamt Norska lútherska kristniboðssambandinu unnið að kristniboði þar síðan 1978.

Starfið hefur verið í örum vexti og er sífellt að færast út til nýrra svæða. Fimm kristniboðsstöðvar voru byggðar upp: Chesta, Chepareria, Seker, Kongelai og Kapenguria. Chepareria var byggð af Íslendingum. Nú eru engir fastir kristniboðar þar að störfum. Starfið í Pókot er rekið og stjórnað af innlendum starfsmönnum kirkjunnar en kristniboðar heimsækja svæðið til að veita ráðgjöf, kenna á námskeiðum og vera til hvatningar.

Kirkjan í Pókot hefur á liðnum árum byggt upp skóla og heimavistir til að auðvelda og bæta aðstöðu til náms. SÍK hefur styrkt slík verkefni og notið styrkja frá utanríkisráðuneytinu til þess en ráðuneytið greiðir 80% af kostnaði þeirra verkefna sem samþykkt eru.

SÍK styrkir útbreiðsluverkefni kirkjunnar þar sem prestar og prédikarar leita út til nýrra svæða og byggja upp starf og söfnuði m.a. meðal nágranna þjóðflokka og meðal Pókotmanna sem búa handan landamæranna í Úganda.

Fólk og yfirvöld eru yfirleitt mjög jákvæð í garð kristniboðsins og kirkjunnar.

Kenya

Myndir frá Kenía í gegnum árin

Þróunarverkefni í Pókot, Keníu til fjögurra ára

Menntun til framtíðar

Lengi hefur það fylgt kristnu fólki að vilja bæta umhverfi sitt og sinna kærleiksþjónustu. ELCK kirkjan í Pókot finnur til ábyrgðar og köllunar í þessum efnum. Hún hefur komið að stofnun og rekstri fjölda skóla á grunn- og framhaldsskólastigi og hefur leitað eftir stuðningi Kristniboðssambandsins til þess að bæta aðstæður til menntunar.

Kristniboðssambandið hefur nýlega hlotið styrk frá utanríkisráðuneytinu til þróunarverkefna til menntamála og vatnsverkefna í Pókot í samstarfi við ELCK, með þau markmið að:

  • Stuðla að áframhaldandi uppbyggingu skóla og bættri aðstöðu til náms, sérstaklega fyrir stúlkur.
  • Tryggja aðgang að hreinu vatni og viðunandi hreinlætisaðstöðu fyrir skóla og nærsamfélag.
  • Vinna að trjárækt sem lið í sjálfbærni, fæðuöryggi og umhverfisvernd.
  • Tryggja stúlkum í bráðri hættu öruggt skjól.

Styrkur ráðuneytisins nemur 80% af heildarkostnaði verkefnisins, en SÍK og heimamenn leggja fram 20%. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við ELCK kirkjuna í Keníu, sem hefur verið samstarfsaðili SÍK í áratugi.

Með þessu þróunarverkefni vill SÍK stuðla að því að börn og ungmenni fái öruggt, aðgengilegt og styðjandi umhverfi til náms, auk þess sem samfélagið nærumhverfis þeirra nýtur beinna áhrifa af bættum innviðum, hreinu vatni og sjálfbærum lausnum. 

 

Litríkar hendur

Viltu styrkja starfið?

Ef þú vilt styrkja verkefnið og hjálpa til við að færa vatn og von til fólks í Pókot,
getur þú lagt fram styrk á gjafareikninga Kristniboðssambandsins

Kennitala: 550269-4149
Íslandsbanki: 0515-26-002800
Landsbankinn: 0117-26-002800
Arion banki: 0328-26-002800

Þróunarverkefninu er skipt í þrennt: Vatnsverkefni, trjáverkefni og skólaverkefni

Vatnsverkefni

Aðgangur að hreinu vatni er forsenda lífs og menntunar. Í mörgum heimavistarskólum í Pókot héraði í Keníu eyða nemendur klukkustundum á dag í að sækja vatn, tími sem annars gæti farið í nám. Skortur á hreinlætisaðstöðu bitnar sérstaklega á stúlkum sem þurfa öruggan aðgang að vatni og hreinlæti vegna blæðinga.

Hluti þróunarverkefnisins er að tryggja aðgang að drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu sem nýtist bæði nemendum og nærsamfélaginu. Með því er stuðlað að bættri heilsu, auknu öryggi og meiri tíma til náms.

Verkefnið felur í sér að bora fyrir vatni við sex skóla, setja upp vatnstanka og sólarknúnar dælur sem dæla vatni frá borholum til heimavista og eldhúsa. Þar sem vatnsból eru fyrir, verða handdælur leystar af hólmi með sólardælum.

Framkvæmdir hefjast strax árið 2025. Þegar verkefninu lýkur hafa sex nýjar borholur verið boraðar og útbúnar með búnaði sem tryggir öruggan aðgang að vatni og hreinlæti. Þetta skapar heilbrigðara og öruggara skólaumhverfi fyrir nemendur og samfélagið í heild.

Trjáverkefni

Á mörgum svæðum í Pókot í Keníu hefur jarðvegur spillst og tré verið felld, sem hefur dregið úr fæðuöryggi og sjálfbærni samfélaga. Til að snúa þessari þróun við hefur Kristniboðssambandið hafið trjáræktarverkefni sem hluta af þróunarstarfi í héraðinu.

Verkefnið miðar að því að efla sjálfbærni, fæðuöryggi og umhverfisvernd og kenna nemendum að rækta tré sem nýtast til matar og tekjuöflunar. Með því að þróa þekkingu á ræktun ávaxta- og nytjatrjáa læra nemendur vistvænar aðferðir og styrkja sjálfstæði samfélagsins.

Nemendur taka þátt í fræsöfnun, gróðursetningu og umhirðu plantna og fá kennslu um hvaða tegundir henta mismunandi svæðum. Þekkingin verður styrkt með einföldu námsefni til áframhaldandi fræðslu.

Fræsöfnun hefst 2025, gróðursetning og kennsla 2026 og verkefnið heldur áfram fram til 2028. Við lok verkefnisins hafa nemendur öðlast dýrmæta reynslu og þekkingu sem stuðlar að sjálfbærri framtíð í Pókot.

Skólaverkefni

Í Pókot-héraði í Keníu sækja mörg börn nám við erfiðar aðstæður. Skólar eru illa búnir, kennarar án skrifstofu og heimavistir yfirfullar. Þrátt fyrir það ríkir sterkur vilji til náms og framtíðarvon. Nú er stigið stórt skref til að bæta aðstöðu og efla kennslu.

 

Kristniboðssambandið, í samstarfi við ELCK kirkjuna í Keníu og með stuðningi utanríkisráðuneytisins, vinnur að uppbyggingu skóla á jaðarsvæðum héraðsins. Þar verða reistar nýjar skólastofur, heimavistir, salerni og skrifstofur kennara. Með því skapast öruggt og hvetjandi námsumhverfi þar sem börn geta lært og þroskast.

 

Sérstök áhersla er lögð á að efla stúlkur til náms með námsstyrkjum og bættri heimavist. Þannig fá þær tækifæri til að ljúka námi og móta sína eigin framtíð. Eins er stutt við öruggt skjól fyrir stúlkur í bráðri hættu á kynfæralimlestingum og barnabrúðkaupum.

 

Einnig eru haldin námskeið fyrir kennara. Með þessu menntunarverkefni er lagður grunnur að varanlegum breytingum fyrir nemendur og samfélögin í kring.

0
Stuðningsaðilar
0
Sjálfboðaliðar allt að
0
Kristniboðar erlendis

Viltu taka þátt með mánaðarlegum eða árlegum stuðningi?

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0