Mikið áfall varð nýlega í framhaldsskóla í Keníu þegar Annet-heimavistin eyðilagðist illa í eldi. Heimavistin hýsti 250 drengi af þeim 1100 nemendum sem stunda nám við skólann. Skólanum hefur nú verið lokað tímabundið meðan rannsókn stendur yfir og unnið er að viðgerðum.
Drengirnir misstu nær allar eigur sínar í brunanum – dýnur, teppi, skólabúninga, bækur og persónulega muni. Nú þarf að bregðast hratt við svo þeir geti snúið aftur til náms á næstu vikum.
Kristniboðssambandið vill leggja sitt af mörkum með því að kaupa nýjar dýnur fyrir alla drengina. Hver dýna kostar 2.000 krónur og þarf alls 250 dýnur.
Með 2.000 króna framlagi getur þú gefið einum dreng nýja dýnu og hjálpað honum að hefja skólagönguna á ný eftir brunann.
Þú getur lagt framlag á gjafareikninga Kristniboðssambandsins:
Kennitala: 550269-4149
Reikningur: 0117-26-2800
Skýring: Dýnur

