Samkoma á miðvikudaginn 1. apríl kl. 20 ✨ Síðasta samkoman í þessari Passíusálmaröð verður á miðvikudaginn. Fræðsla kvöldsins er um dauða Jesú og greftrun hans út frá Passíusálmum 45–50. Magnús Björnsson verður ræðumaður kvöldsins og sér um brauðsbrotningu. Að samkomu lokinni verður kaffi og samfélag. Allir hjartanlega velkomnir 💛
Samkoma miðvikudaginn 14. janúar kl. 20
Hver er tilgangur lífsins? Guðlaugur Gunnarsson fjallar um leitina að tilgangi.
Jónas Haraldsson segir frá upplifun sinni af Alfa-námskeiði.
Komum saman um orð Guðs í samfélagi trúaðra. Kaffisamfélag að lokinni samkomu.
Í kvöld, miðvikudag 15. október, verður bænasamkoma í Kristniboðssalnum kl. 20:00.
Þórdís Klara Ágústsdóttir flytur hugleiðingu og sr. Bryndís Böðvarsdóttir mun annast heilaga kvöldmáltíð.
Komum saman í bæn fyrir starfinu og öðrum bænarefnum sem á okkur hvíla.
Kaffi og samfélag að lokinni samkomu.
Skrifstofa Kristniboðssambandsins verður lokuð mánudaginn 13. október vegna jarðarfarar.
