Skip to content Skip to footer

Z og Guð

Tveir ungir menn, Friðrik Páll R. Schram og Úlfar Darri Lúthersson, stóðu fyrir hlaðvarpinu Z og Guð á Spotify og YouTube. SÍK kom að stuðningi við hlaðvarpið. Þættirnir eru sérstaklega miðaðir að því að boða Z kynslóðinni fagnaðarerindið. Gefum Friðriki Páli og Úlfari Darra orðið:

Boðun fagnaðarerindisins

„Markmiðið okkar með Z & Guð var tvíþætt. Í fyrsta lagi er það að segja frá Góðu fréttum Jesú – Fagnaðarerindinu. Kvöldið sem við ákváðum að fara af stað með verkefnið vorum við á leiðinni í bíó, á stríðsmynd. Við sátum í hægindum okkar að horfa á framvindu skáldaðrar borgarastyrjaldrar. Stríðið á skjánum virtist fjarlægur veruleiki. En eins og við ræddum eftir myndina, er veruleiki stríðs nær okkur en við erum kannski meðvitaðir um. Raunverulegt stríð af andlegum toga er háð allt í kringum okkur þar sem sálir eru í húfi og fólk er raunverulega að farast. Hvað ætlum við að gera í því?

Ætlum við að verða vitni að harmleik með því að sitja hjá aðgerðarlausir?

Eða ætlum við að vitna um hjálpræðið og „berjast góðu baráttunni“ (1. Tím. 6:12)?

Auðvitað viljum við gera eitthvað í stöðunni! Þess vegna byrjuðum við með hlaðvarpið. Til að vara fólk við afleiðingum guðleysisins og segja frá lífinu sem Jesús býður okkur fyrir dauða sinn og upprisu! Við viljum að Fagnaðarerindið sé innihald hvers þáttar með beinum eða óbeinum hætti. Fólk þarf að heyra!

Tímabært samtal

Í öðru lagi er markmið okkar að gera ekta Kristið samtal aðgengilegt fyrir ungt fólk. Unga kynslóðin kann almennt ekki Faðir vorið, þekkir ekki sunnudagaskóla-sögurnar og veit ekki endilega hvað sunnudagaskóli er yfir höfuð. Við erum að horfast í augu við gífurlegt þekkingarleysi um kristnina vegna þróunar síðustu áratuga. Afleiðingarnar sjáum við í auknum kvíða, rótleysi og annarri vanlíðan. En með fáfræði kemur gullið tækifæri. Forvitni. „Hvað höfum við farið á mis við?“ erum við að sjá ungt fólk hugsa í dag. „Um hvað snýst þessi kristna trú?“.

Þessari forvitni viljum við svala. Þess vegna eru efnistökin okkar fjölbreytt. Allt frá Biblíulegum atriðum á borð við bænina (#9) og elsku Guðs (#22), yfir í umræðuefni samtímans eins og samfélagsmiðla (#17) og sambönd (#6). Með þeirri umfjöllun viljum við byggja upp unga Kristna, og fræða áhugasama um trúna. En við miðum ekki bara að því að efnið okkar sé ekta, heldur líka við sjálfir. Þess vegna viljum við ekki taka sjálfa okkur of alvarlega og reynum að slá á létta strengi, oftar en í hefðbundinni sunnudags-predikun. Á sama tíma og við ræðum okkar reynslu heiðarlega, af því að fylgja Jesú.

Í Z og Guð viljum við fræða ungt fólk um Kristnina, hafa skemmtanagildið á sínum stað og umfram allt breiða út boðskap Fagnaðarerindisins.“

Þættirnir eru ekki lengur í framleiðslu en þeir eru þó aðgengilegir.  

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0