Ragnhild Myren verður aðal gestur á Kristniboðsviku SÍK í ár. Hún er starfsmannastjóri hjá NLM í Noregi og hefur víðtæka reynslu af kristniboðsstarfi.
Ragnhild er alin upp í Eþíópíu sem barn kristniboða og starfaði síðar sjálf þar ásamt eiginmanni sínum, Temesgen Shibru Galla. Hún er menntaður hjúkrunarfræðingur með framhaldsmenntun í stjórnun.
Undanfarin ár hefur hún leitt vinnu NLM með kristniboðabörn og komið að mikilvægu stuðningsstarfi fyrir þann hóp.
Við hlökkum til að hafa hana með okkur á Kristniboðsviku.

