KRISTILEGT LEIÐTOGANÁMSKEIÐ ![]()
![]()
Ert þú á aldrinum 17–25 ára og langar að vaxa í trúnni, þroskast sem leiðtogi og kynnast ungu fólki frá öðrum löndum?
Í haust fer Kristniboðssambandið af stað með nýtt leiðtoganámskeið í samstarfi við Heimamissiónina í Færeyjum.
Þetta er ekki bara námskeið með fræðslu heldur er markmiðið að byggja upp leiðtoga á praktískan hátt, þannig að í lok námskeiðsins hafir þú dýrmæta reynslu sem nýtist í leiðtogastarfi og persónulegu lífi. Þátttakendur fá kennslu, handleiðslu, áskoranir og tækifæri til að vaxa bæði andlega og persónulega.
Helgarmót í Færeyjum í september
Kennsla eitt kvöld í mánuði frá september til apríl
Lokahelgi á Íslandi í apríl
Þátttakendur frá Íslandi og Færeyjum
Fjöldi á námskeiðinu verður takmarkaður við 12 manns í hvoru landi og því munu færri komast að en vilja.
Umsóknarfrestur er 1. júlí.
Umsókn og allar upplýsingar: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfhfe3E3l6W_XErpU_u0whE7FyBzUUAj7NUeeQG2TWQpoEV9g/viewform?usp=header
Ef þú hefur spurningar máttu hafa samband við Kristniboðssambandið í síma 533-4900

