Við flytjum ykkur þær gleðifréttir að von er á tveimur sjálfboðaliðum frá færeysku kristniboðshreyfingunni Heimamissióninni (HM) – þeim Andrias Garðsá og Magnus Hammer í Hjøllum – til að starfa hjá SÍK næsta hálfa árið. Þeir munu vinna að því að efla ungmennastarf í nánu samstarfi við íslensk ungmenni.
Koma þeirra er hluti af nýjum samstarfssamningi SÍK og HM, sem undirritaður var síðasta sumar. Með honum er meðal annars lögð aukin áhersla á trúboðsstarf á norðurslóðum.
Andrias hefur starfað í æskulýðsstarfi HM síðustu mánuði og sér meðal annars um HMU hlaðvarpið. Magnus var sjálfboðaliði í sjómannatrúboði á Grænlandi fyrr á þessu ári og hér má sjá viðtal við hann um þá reynslu.
Nú leitum við að íbúð handa þeim frá miðjum janúar og fram á sumar. Best væri að hún væri búin húsgögnum. Ef þú veist um litla góða íbúð sem myndi henta má hafa samband við Sigríði Schram hjá SÍK, í síma 533-4900 eða tölvupósti á sigridur.schram@sik.is.
Við hlökkum til að taka á móti þessum öflugu sjálfboðaliðum og bjóðum þá innilega velkomna!

