Skip to content Skip to footer

Atvinnuauglýsing

Hefur þú hjarta fyrir ungu fólki, kristniboði og kristilegu starfi?

Langar þig að leggja þitt af mörkum til að ungt fólk kynnist Jesú og vaxi í trú og þjónustu? Þá gæti þetta starf verið fyrir þig.

Kristniboðssambandið leitar að starfsmanni í hlutastarf til að leiða og styðja við ungmennastarf samtakanna og taka þátt í fjölbreyttu innanlandsstarfi.

Starfið felur í sér að styðja og leiðbeina sjálfboðaliðum, efla ungmennastarf og leiðtogaþjálfun, sinna fræðslu og kynningu á starfi SÍK og taka þátt í að þróa kristilegt starf meðal barna og ungmenna.

Helstu verkefni geta meðal annars falist í:

  • Að styðja, þjálfa og leiðbeina sjálfboðaliðum í ungmennastarfi.
  • Að skipuleggja og þróa ungmennastarf í samstarfi við leiðtoga og sjálfboðaliða.
  • Að halda utan um leiðtogaþjálfun fyrir eldri ungmenni.
  • Að kynna kristniboðsstarf SÍK í kirkjum, söfnuðum, skólum og á öðrum vettvangi.
  • Að sinna miðlun og kynningarmálum, þar á meðal heimasíðu, samfélagsmiðlum og öðru kynningarefni.
  • Að efla tengsl við kirkjur, kristileg félög og samstarfsaðila.
  • Að taka þátt í öðrum verkefnum sem tengjast innanlandsstarfi SÍK. 

Við leitum að einstaklingi sem á lifandi kristna trú, hefur áhuga á kristniboði og reynslu af kristilegu starfi. Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með samskipti, geta unnið sjálfstætt og hafa ánægju af því að vinna með fólki, sérstaklega ungu fólki. Stúdentspróf er skilyrði, háskólamenntun æskileg. Gerð er krafa um góða kunnáttu í íslensku, bæði í ræðu og riti.

Við bjóðum fjölbreytt og gefandi starf með skýran tilgang og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á líf ungmenna.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Schram í síma 533-4900 eða með töluvpósti til sigridur.schram@sik.is.

Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á sigridur.schram@sik.is. Umsóknarfrestur er til 1. júlí.

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0