Skip to content Skip to footer

Andlát: Jónas Þórisson kristniboði og fyrrum framkvæmdastjóri

Jónas Þórir Þórisson kristniboði lést á Landspítalanum í gærkvöldi, 8. ágúst, 77 ára að aldri.

Jónas starfaði sem kristniboði í Eþíópíu ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Ingvarsdóttur, á árunum 1973-1987. Hann sinnti þar m.a.  boðun, fræðslu, hjálpar- og neyðarstarfi í Konsó og fjármálastjórnun á skrifstofu kirkjunnar, Mekane Yesu. Aðstæður voru oft erfiðar vegna hungursneyðar og byltingar sem gerð var þegar keisararnum var steypt af stólki og marxískri hugmyndafræði komið á. Á sama tíma óx starfið og efldist.

Hér heima gegndi Jónas starfi skrifstofustjóra Aðalskrifstofu KFUM og KFUK og Kristniboðssambandsins í nokkur ár en var síðan ráðinn sem framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar sem hann sinnti til ársins 2013 eða í rúma tvo áratugi. Jónas var farsæll í starfi og lagði mikið af mörkum til kristniboðs og hjálparstarfs á starfsævi sinni. Jónas  sat í stjórn Kristniboðssambandsins í mörg ár, þar af tæpan áratug sem formaður til ársins 2008. Hann lagði starfinu lið með ýmsu móti eftir það.

Stjórn og starfsmenn SÍK senda fjölskyldu Jónasar innilegar samúðarkveðjur í þakklæti fyrir þjónustu og störf Jónasar í þágu kristniboðsins. Drottinn blessi minningu góðs drengs.

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0