Kristniboðssambandið býður upp á Alfa námskeið á ensku með perneskum texta. Markhópurinn er ensku- og persneskumælandi fólk en Íslendingar sem skilja ensku eru hjartanlega velkomnir. Hægt verður að tjá sig hvort sem er á íslensku, ensku eða persnesku.
Námskeiðið er ókeypis og stendur yfir í 10 vikur. Það hefst fimmtudaginn 18. september kl. 18:30 með léttum kvöldmat.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Kristniboðssambandsins í síma 533 4900 eða með tölvubópsti til sik@sik.is.

