Næsta Alfa-námskeið hefst fimmtudaginn 24. september.
Alfa er 10 vikna námskeið um kristna trú. Þar er fjallað á einfaldan og þægilegan hátt um grundvallaratriði kristinnar trúar og boðskap Biblíunnar. Leitað er svara við mikilvægustu spurningum lífsins, spurningum sem allir spyrja sig einhvern tímann á lífsleiðinni. Er Guð til? Hver er tilgangur lífsins? Er kristin trú úrelt og óviðeigandi?
Á hverju námskeiðskvöldi er byrjað með léttum kvöldverði. Eftir hann er sýnt 20 mín myndband um afmarkað efni í kristinni trú og svo fara fram umræður í hópum. Umgjörð námskeiðsins er afslöppuð og þægileg og ekki eru lagðar kröfur á þátttakendur um viðhorf, skoðanir eða afstöðu.
Við hvetum ykkur til að bjóða vinum með.
Staður og stund:
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð.
Kl. 18:30-20:30 alla fimmtudaga.
Skráning: sik@sik.is eða s. 533-4900
Alfa hefst 24. september!

