Skip to content Skip to footer

Leiðtoganámskeið fyrir ungt fólk í haust

🌍 KRISTILEGT LEIÐTOGANÁMSKEIÐ 🇮🇸🇫🇴

Ert þú á aldrinum 17–25 ára og langar að vaxa í trúnni, þroskast sem leiðtogi og kynnast ungu fólki frá öðrum löndum?

Í haust fer Kristniboðssambandið af stað með nýtt leiðtoganámskeið í samstarfi við Heimamissiónina í Færeyjum.

Þetta er ekki bara námskeið með fræðslu heldur er markmiðið að byggja upp leiðtoga á praktískan hátt, þannig að í lok námskeiðsins hafir þú dýrmæta reynslu sem nýtist í leiðtogastarfi og persónulegu lífi. Þátttakendur fá kennslu, handleiðslu, áskoranir og tækifæri til að vaxa bæði andlega og persónulega.

📍 Helgarmót í Færeyjum í september

📍 Kennsla eitt kvöld í mánuði frá september til apríl

📍 Lokahelgi á Íslandi í apríl

📍 Þátttakendur frá Íslandi og Færeyjum

Fjöldi á námskeiðinu verður takmarkaður við 12 manns í hvoru landi og því munu færri komast að en vilja.

📅 Umsóknarfrestur er 1. júlí.

👉 Umsókn og allar upplýsingar: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfhfe3E3l6W_XErpU_u0whE7FyBzUUAj7NUeeQG2TWQpoEV9g/viewform?usp=header

Ef þú hefur spurningar máttu hafa samband við Kristniboðssambandið í síma 533-4900

Leave a comment

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0