Gleðilegt nýtt ár!
Fyrsta samkoma ársins verður miðvikudaginn 7. janúar kl. 20 í Kristniboðssalnum.
Sigríður Schram flytur hugleiðingu, við horfum fram á við, fáum fréttir af starfinu og leggjum árið í Guðs hendur. Svo er að sjálfsögðu boðið upp á kaffiveitingar og samfélag.
Hallelúja.
Ég vil lofa Drottin af öllu hjarta
í félagi og söfnuði réttvísra.
Mikil eru verk Drottins,
verð íhugunar öllum er hafa unun af þeim.
Tign og vegsemd eru verk hans
og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.
Hann hefur látið minnast dásemdarverka sinna,
náðugur og miskunnsamur er Drottinn,
hann gaf þeim fæðu er óttast hann,
minnist sáttmála síns ævinlega.
Hann kunngjörði þjóð sinni mátt verka sinna
með því að gefa henni erfðahlut annarra þjóða.
Hann er trúr og réttlátur í öllum verkum sínum,
öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg,
standa óhagganleg um aldur og ævi,
framkvæmd í trúfesti og réttvísi.
Hann sendi lausn lýð sínum,
setti sáttmála sinn að eilífu,
heilagt og óttalegt er nafn hans.
Að óttast Drottin er upphaf speki,
þeir vaxa að viti sem hlýða boðum hans.
Lofstír hans stendur um eilífð.
Sálm. 111

