Heimsókn frá Íslensku Kristskirkjunni á samkomu miðvikudaginn 9. september

Kristniboðssambandið á í góðu samstarfi við Íslensku Kristskirkjuna og erum við m.a. að undirbúa sameiginlegt mót sem haldið verður í Vatnaskógi helgina 9.- 11. október. Ræðumaður samkomunnar annað kvöld verður Ólafur H. Knútsson, prestur Kristskirkjunnar og einnig mun Oddur Carl Thorarensen, lofgjörðarleiðtogi kirkjunnar taka þátt í samkomunni og mun m.a. flytja tónlist ásamt Matthíasi Ægissyni gítarleikara

Kaffisopi í boði eftir samkomuna – Velkomin 🙂