Fyrsta miðvikudagssamkoman eftir sumarfrí verður í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58- 60 kl 20 í kvöld 12. ágúst. Hjónin Ásta Bryndís Schram og Keith Reed leiða stundina í tónum og tali og gefst samkomugestum tækifæri til að koma með óskalög og sálma. Fréttir frá kristniboðsstarfinu.
Passað verður vel upp á að fara eftir öllum reglum um sóttvarnir
Ekki verður boðið upp á kaffi eftir samkomur að svo stöddu