Ungmennastarf Kristniboðssambandsins er að hefjast! 🙌
Dagbjartur Elí og Þyrí eru að byrja með unglingafræðslu á þriðjudögum kl. 19:30–21:00, fyrir unglinga á aldrinum 13–15 ára.
Í starfinu verður m.a.:
✨ farið í Alfa námskeið
🏕 farið í helgarferð út á land
✈️ og í október fer hópurinn til Færeyja á unglingamót
Þetta verður frábær vettvangur til að eignast vini, kynnast kristinni trú og hafa gaman saman í öruggu og hlýju umhverfi 💛
Ef þið þekkið ungling á þessum aldri eru þau hjartanlega velkomin að mæta!
📅 Kynningarfundur: 20. janúar
📍 Staðsetning: Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58–60, 3. Hæð

