Skip to content Skip to footer

Öruggt skjól stúlkna í Pókot fær nafn

Í Chepareria í Pókot stendur lítið hús sem íslenskir kristniboðar reistu og bjuggu í. Þar er nú heimili og athvarf fyrir stúlkur í viðkvæmri stöðu. Fjallað hefur verið um heimilið í fyrri fréttum.

Þar til nú hefur athvarfið einfaldlega verið kallað Safe Space. En stúlkurnar sjálfar óskuðu eftir nýju nafni sem hljómaði meira eins og heimili og væri lýsandi fyrir verndina sem þær finna þar. Að lokum völdu þær nafnið „Ragnar’s Shield Safe Haven.“

Nafnið er valið til heiðurs Ragnari Gunnarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra SÍK og því frumkvæði sem hann, SÍK og ELCK kirkjan hafa tekið til að auka lífsgæði og tækifæri fólks í Pókot. Í augum stúlknanna stendur nafnið fyrir það skjól og öryggi sem stuðningurinn frá Íslandi hefur skapað þeim – stað þar sem þær geta einbeitt sér að námi og verið lausar við ótta. 

Jamas Murray, forstöðukona heimilisins sagði þetta um Ragnar:
„Ragnar Gunnarsson er fyrir mér ekki bara styrktaraðili eða samstarfsmaður. Hann er lifandi dæmi um hvað það þýðir að helga líf sitt málefni sem er stærra en maður sjálfur. Í áratugi hefur óbilandi trú hans á stúlkur í Pókot reist skóla, greitt fyrir menntun og breytt lífshlaupi margra. Hann gaf ekki bara fé — hann gaf framtíð.“

Við hjá Kristniboðssambandinu erum þakklát fyrir að Ragnar hlýddi köllun Guðs því Guð hefur sannarlega gefið vöxtinn. Trúin á Jesú breytir hugarfari og er hreyfiafl til jákvæðra breytinga.

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0