Nægt og hreint vatn streymir nú úr glænýrri borholu í Chespen í Pókot-héraði í Keníu. Þetta er stór áfangi í vatnsverkefni Kristniboðssambandsins, sem unnið er í samstarfi við ELCK kirkjuna og með styrk frá utanríkisráðuneytinu.
Borholan mun létta verulega líf fólks í samfélaginu, draga úr vatnsskorti og bæta bæði heilsu og daglegt líf nemenda og fjölskyldna á svæðinu. Fyrir árslok verður borað eftir vatni á tveimur öðrum stöðum, sem mun styrkja verkefnið enn frekar og tryggja að fleiri fái öruggan aðgang að drykkjarhæfu vatni.
Ef þú vilt styrkja verkefnið og hjálpa til við að færa vatn og von til fólks í Pókot,
getur þú lagt fram styrk á gjafareikninga Kristniboðssambandsins:
Kennitala: 550269-4149
Íslandsbanki: 0515-26-002800
Landsbankinn: 0117-26-002800
Arion banki: 0328-26-002800

