Kristniboðsfélag kvenna heldur árlegan Jólabasar laugardaginn 15. nóvember kl. 13–17 í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58–60, 3. hæð.
Á boðstólnum verður fjölbreytt úrval af handverki, kökum, jólavörum og happdrætti, auk þess sem boðið verður upp á ilmandi kaffi, heitt súkkulaði og nýbakaðar vöfflur.
Allur ágóði rennur óskertur til kristniboðsstarfsins, og styður þannig mikilvægt starf sem nær langt út fyrir landsteinana.
Við hvetjum alla til að líta við, njóta góðrar samveru og styðja gott málefni í leiðinni.
Allir hjartanlega velkomnir!

