Skip to content Skip to footer

Fyrsta unglingasamkoma SÍK gekk vel!

Á þriðjudagskvöldið héldu Þyrí og Dagbjartur Elí, með aðstoð Færeyinganna Magnusar og Andriasar, fyrstu ungmennasamkomu annarinnar hjá SÍK 🙌

Magnus og Andrias komu hingað til lands sem sjálfboðaliðar 12. janúar og munu á vorönninni aðstoða SÍK við að byggja upp og efla unglingastarf. Þeir eru meðal annars virkur hluti af þessari unglingafræðslu og er koma þeirra liður í því að efla samstarf okkar við Færeyjar. Stefnt er að því að hópurinn fari saman á unglingamót í Færeyjum í október, sem verður spennandi og uppbyggjandi framhald af starfinu. ✨

Það er mikil blessun að fá Magnús og Andrias til starfa og ljóst að þeir bera trú, samfélagi og uppbyggingu ungmenna fyrir brjósti. Við hlökkum til samstarfsins við þá. 💛

Á samkomunni á þriðjudag var haldinn kynningarfundur þar sem farið var yfir það sem er framundan á önninni.

Kvöldið gekk rosalega vel, mætingin var góð og stemningin frábær. Unglingarnir virtust spenntir fyrir því sem er framundan og allt bendir til enn betri mætingar næsta þriðjudag. ✨

Ef þið þekkið unglinga á aldrinum 13-15 ára, endilega látið þá vita að þeir séu hjartanlega velkomnir. Það er greinilega að myndast góður og samheldinn hópur í unglingafræðslunni 💛

Leave a comment

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0