Skip to content Skip to footer

Friðarfundur haldinn í Keníu

Yfir þúsund manns komu saman til friðarfundar í Keníu. 

Á aðfangadag, 24. desember, komu yfir þúsund manns saman í Kamolokon á landamærum Marakwet og Pókot í Keníu til friðarfundar og bænar. Þar voru saman komnir leiðtogar þorpa, kirkjufólk og fulltrúar yfirvalda til að hvetja til sátta á svæði sem lengi hefur glímt við átök og deilur um búfénað og landamæri. 

Fundurinn var haldinn að frumkvæði ELCK-kirkjunnar með stuðningi Kristniboðssambandsins. Boðskapurinn var að friður er sameiginleg ábyrgð og sátt er möguleg þegar fólk kemur saman í bæn, samtali og vilja til breytinga. 

Að loknum fundinum lýstu skipuleggjendur miklu þakklæti fyrir stuðninginn og sögðu samkomuna hafa tekist einstaklega vel. Þátttakan fór fram úr öllum væntingum og vonir standa til að fundurinn marki mikilvægt skref í átt að varanlegri sátt á svæðinu. 

Leave a comment

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0