Nú fer í hönd annasamur tími hjá okkur í Kristniboðssambandinu.
Hér á bæ eru fram undan tvær stórar fjáraflanir fyrir kristniboðsstarfið: Kaffisala Kristniboðsfélgs karla á kristniboðsdaginn 8. nóvember og jólabasar Kristniboðsfélags kvenna laugardaginn 14. nóvember.
Auk þess er hefðbundið samkomu- og fundahald. Samkoman miðvikudaginn 4. nóvember er bænasamkoma þar sem Bjarni Gunnarsson leiðir okkur í söng og sr. Helga Kolbeinsdóttir flytur hugleiðingu um ósýnilega þræði.
Kristniboðsfélag Akureyrar boðar einnig til samkomu 8. nóvember kl. 17 á Hjálpræðisernum.
Njótum þess að koma saman og uppörvast í Orði Guðs og samfélagi trúaðra.

