Júlíana Gústafsdóttir Eriksson og Rannvá Hentze ganga til liðs við Kristniboðssambandið

Júlíana Gústafsdóttir Eriksson hefur verið ráðin verkefnastjóri ungmennastarfs hjá Kristniboðssambandinu í hálft starf. Hlutverk hennar verður að styðja við og efla ungmennastarf innan SÍK, sinna leiðtogaþjálfun og hvetja ungt fólk til að kynnast Jesú og fylgja honum. Júlíana er kennari að mennt og hefur um árabil starfað við kennslu og kristilegt æskulýðsstarf á Selfossi. Hún býr yfir ríkulegri reynslu og brennandi áhuga á starfi með ungu fólki.

Í september kemur einnig nýr sjálfboðaliði frá systursamtökum okkar í Færeyjum, Heimamissióninni. Rannvá Hentze mun taka taka við kyndlinum af þeim Magnusi og Andirasi sem voru hjá okkur í vor.

Við bjóðum Júlíönu og Rannvá hjartanlega velkomnar og hlökkum til samstarfsins.

Leave a comment

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0