Skip to content Skip to footer

Sumarmót 17.–19. júlí

Árlegt sumarmót Kristniboðssambandsins verður haldið að Löngumýri í Skagafirði dagana 17.—19. júlí næstkomandi.

Dagskrá mótsins verður með hefðbundnu sniði: Norðanmenn munu sjá um upphafsstund á föstudagskvöldið, sr. Ólafur Jóhannsson um biblíulestur á laugardegi, Sigríður Schram verður með kristniboðskynningu síðdegis á laugardag og Kristniboðsfélag karla heldur utan um vitnisburðarstund um kvöldið. Sr. Guðmundur Guðmundsson þjónar við guðsþjónustu í Miklabæjarkirkju í Skagafirði kl. 11 á sunnudeginum og mótinu lýkur með samveru kl. 14.

Skráning fer fram á Löngumýri í síma 453-8116 eða með því að senda póst á netfangið langamyri@kirkjan.is.

Verð:
Mótsgjald 3000 (fyrir þá sem ekki eru í gistingu inni).

Gisting í uppbúnu á mann 1 nótt án fæðis 14.000.
Gisting í uppbúnu á mann 2 nætur án fæðis 25.000.

Svefnpokapláss á mann 1 nótt án fæðis 8.000.
Svefnpokapláss á mann 2 nætur án fæðis 15.000.

Tjaldstæði á mann 1 nótt án fæðis 1.500.
Rafmagn á nótt (á bíl, vagn eða tjald) 1.000.

Fullt fæði á mann í gistingu 20.000.
Stakar máltíðir (Sjá verðlista á staðnum).
*10–14 ára greiða hálft gjald og yngri en 10 ára ekkert.

Leave a comment

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0