Kaffisala á samkomu, miðvikudaginn 22. apríl kl. 20 ![]()
Við komum saman í Kristniboðssalnum á miðvikudaginn.
Færeyjingarnir Magnus og Andrias segja frá starfi sínu hér á landi og deila hugleiðingu. Þeir hafa verið hér sem sjálfboðaliðar við að byggja upp ungmennastarf og verður spennandi að heyra frá þeirra reynslu.
Margrét leiðir tónlistina.
Unglingastarf SÍK sem hófst í janúar verður einnig með fjáröflun fyrir helgarmót sem þau fara á í Kirkjulækjarkoti í maí – kökusala að samkomu lokinni sem kostar 1.500 kr á mann. Við hvetjum alla til að styðja þau ![]()
Allir hjartanlega velkomnir!

