Eins og mörgum er kunnugt hafa tveir Færeyjingar, Magnus og Andrias, verið hér síðan í janúar og unnið ungmennastarf í samstarfi við SÍK. Þeir hafa reynst okkur afar vel og verið mikil blessun í starfinu.
Núna styttist í að núverandi leigusamningur þeirra rennur út og því leitum við til ykkar eftir aðstoð.
Ef þið eigið eða vitið um íbúð sem gæti hentað þeim – helst með húsgögnum og helstu áhöldum – værum við afar þakklát ef þið hefðuð samband við okkur.
Tímabilið sem um ræðir er frá 13. apríl og út maí, og mögulega fram í byrjun júní.
Hafið endilega samband við okkur hjá SÍK:
533-4900
sik@sik.is
Kærar þakkir fyrir alla aðstoð!

