Það var ógleymanleg stund að hitta öldungana í Chespen og verða vitni að gleði þeirra og þakklæti fyrir vatnið.
Chespen er einn af þremur stöðum sem borað var eftir hreinu vatni síðustu vikur. Þar hefur verið mikill vatnsskortur og fólk þurft að grafa eftir vatni í þurrum árfarvegi fyrir sjálft sig og búpeninginn. Fólk átti varla orð til að lýsa þakklæti sínu, gleði og undrun – og öldungarnir fjórir sem komu sérstaklega til að flytja okkur þakkir sögðust meira að segja hafa baðað sig fjórum sinnum síðustu daga. Það er sko lúxus!
Þeir hafa beðið Guð um að gefa sér vatn og nú er komið bænasvar!
Verið er að leggja lokahönd á verkið, tengja vatnstankinn og útbúa vatnspósta og formleg opnunarhátíð er fyrirhuguð eftir rúma viku.

