Yfir þúsund manns komu saman til friðarfundar í Keníu.
Á aðfangadag, 24. desember, komu yfir þúsund manns saman í Kamolokon á landamærum Marakwet og Pókot í Keníu til friðarfundar og bænar. Þar voru saman komnir leiðtogar þorpa, kirkjufólk og fulltrúar yfirvalda til að hvetja til sátta á svæði sem lengi hefur glímt við átök og deilur um búfénað og landamæri.
Fundurinn var haldinn að frumkvæði ELCK-kirkjunnar með stuðningi Kristniboðssambandsins. Boðskapurinn var að friður er sameiginleg ábyrgð og sátt er möguleg þegar fólk kemur saman í bæn, samtali og vilja til breytinga.
Að loknum fundinum lýstu skipuleggjendur miklu þakklæti fyrir stuðninginn og sögðu samkomuna hafa tekist einstaklega vel. Þátttakan fór fram úr öllum væntingum og vonir standa til að fundurinn marki mikilvægt skref í átt að varanlegri sátt á svæðinu.

