Kynnumst kristinni trú saman. Prófaðu Alfa.
Kristniboðssambandið býður upp á Alfa námskeið sem hefst fimmtudaginn 15. janúar.
Á Alfa er horft á myndbönd og höfð heiðarleg samtöl um lífið, trúna og spurningarnar sem við berum öll.
Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga – óháð trú eða lífsskoðunum.
Við viljum endilega ná til fólks á aldrinum 20-40 ára fyrir þetta námskeið, ef þú telur að þetta sé fyrir þig eða einhvern sem þú þekkir, ekki hika við að hafa samband. Við erum einnig með boðskort á skrifstofu SÍK ef þig langar að bjóða vinum.
Fimmtudagar |
18:30 |
Byrjum alltaf á mat
Háaleitisbraut 58–60, 3. Hæð
Námskeiðið stendur yfir í 10 vikur. Til að skrá sig má senda tölvupóst á sik@sik.is eða hringja í síma 533-4900.
Nánar á alfa.is

