Þessa dagana eru 36 sunnudagaskólakennarar á námskeiði í Chesta (í Pókot í Keníu). James og Angela Joransen hafa skipulagt námskeiðið ásamt prestum kirkjunnar og „skroppið“ þangað suður eftir til að kenna. Þessir 36 sunnudagaskólakennarar, sem starfa í Kerio Valley, eru að hittast allir saman í fyrsta sinn. Eins og sjá má af myndunum er gleðin ósvikin og áhuginn leynir sér ekki.



